Prófíll

  • Nafn: Kristín Grímsdóttir
  • Netfang: kristingrims@gmail.com
  • Staður: Grafarvogur
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð
  • Um mig: Ung á uppleið

Auglýsing

Sigur lífsins

11. júní 2006 klukkan 22:57
Sit núna á Reykjavíkurflugvelli og nýti mér heitan reit Símans. Aldeilis hentugt.

Á leiðinni hingað las ég yfir Moggann. Ég hef lagt það í vana minn að fletta hægt yfir minningargreinarnar, hvort sem það er af virðingarskyni eða forvitni veit ég ekki. Þetta er bara ávani.
Ef ég rekst á minningargrein um ungt fólk les ég hana undantekningarlaust. Ég er forvitin að vita hvað hefur ollið dauða manneskju í blóma lífsins og langar að vita hvar manneskjan stóð í lífinu. Hvað hún hafði afrekað og hvað hún hafði gefið af sér til annarra, því það er það sem fólk segir frá í minningargreinum. Því góða í fólki. Í mörgum tilfellum er það fólk sem gengur vel í lífinu sem fellur frá ungt, eins sorglegt og það er.

Í minningargreinum dagsins í dag var grein um 13 ára stelpu. Hún stundaði íþróttir, stóð sig vel í skóla og átti marga góða vini. Lífið blasti við henni. En það sem vakti aðallega athygli mína er að hún átti tvíburabróður. Ég hef tekið eftir að undanfarið hafa fallið frá ungir tvíburar. Sif frá Flateyri, falleg og lífsglöð stelpa, varð bráðkvödd fyrir tæpum tveimur árum. Hún átti tvíburarbróður. Þórey, sem lést af slysförum í vetur, sem stundaði körfubolta af fullu var einnig tvíburi. Allt eru þetta ungar stelpur sem eiga tvíburabróður.

Ætli þetta sé ekki einskær tilviljun. Allavega trúi ég ekki á örlögin, að til séu skapanornir sem klippi á þráðinn þegar löngunin grípur þær. Þetta virkar samt fremur kaldhæðnislegt, kaldhæðni örlagann, ef svo má að orði komast.

Mér finnst það ekki sanngjarnt að margir sói lífum sínum í vitleysu og rugl á meðan stelpur, einsog þær sem ég nefndi hér að ofan, fá ekki tækifæri til að vera hjá okkur lengur. Samt sem áður er það staðreynd að margir koma illa fram, eru latir, ofbeldishneigðir, svikulir og svo mætti lengi telja. Það er svo ótalmargt sem lífið hefur uppá að bjóða, svo margt sem allir geta nýtt sér. Þá er ég ekki að tala um völd og auð, heldur þessi litlu augnablik sem gefa okkur svo mikið. Alla þá sigra sem við getum unnið t.d. á sviði frama, ástar og íþrótta.

Sigur er ekki það sama fyrir alla. Sigur getur verið fyrir fatlaðan mann að ganga óstuddur. Fyrir aðra getur það verið stöðuhækkun, að finna draumaprinsinn eða að fyrirgefa ósætti. Eignast heilbrigt barn, fá að sjá úrslitaleikinn í HM eða að þora að hoppa fallhlífarstökk. Sigur er því mjög afstætt hugtak.

Ég held samt að stærsti sigur lífsins er að geta litið hamingjusamur til baka og verið ánægður með sjálfan sig.
Kristín Grímsdóttir
Sirrý
 
,,Mér finnst það ekki sanngjarnt að margir sói lífum sínum í vitleysu og rugl á meðan stelpur, einsog þær sem ég nefndi hér að ofan, fá ekki tækifæri til að vera hjá okkur lengur."

Búnað velta þessu frekar mikið fyrir mér að undarförnu en svona er lífið víst bara.... stundum virðist það vera þannig að þeir sem eiga mest (ef hægt er að segja það) erindi hérna hjá okkur eru teknir í burtu... en svona er þetta og við fáum víst engu breytt :( En það fær mann til að hugsa og hætta að vorkenna sjálfum sér og vera bara í staðinn ánægðari með það sem maður hefur og tók áður sem sjálfsögðum hlut!
12. júní 2006 klukkan 00:17
Jóhann
 
það er liklega nokkuð til í því að þeur deyja ungir sem guðirnir elska.
á hinn bóginn eru þeir sem sólunda lífinu í vitleysu kannski að hluta til hvatnig fyrir þá sem hafa óbeit á þeirri hegðun. kannski svolitið undarlegt að segja en kannski fær það aðra til að hugsa sinn gang og gera eins vel og þeir geta og fleygja ekki lífinu frá sér. (er samt ekki að afsaka þannig hegðun, húner alltaf heimskuleg)
en að sjálfsögðu er þetta alltaf sorglegt þegar ungt fólk fellur frá. þá finnst meér engu máli skipta hvort fólk hefur afrekað eitthvað eða ekki. hvort það var í íþróttum eða átti maka. fráfall ungs fólgs er hræðilegt.
12. júní 2006 klukkan 06:52
Ég hef þá skoðun að það sé akkúrat öfugt. Það hvetur mig ekki áfram að sjá fólk fara illa með sig heldur er því öfugt farið. Ég finn aðeins til vorkunnar og jafnvel gætir fyrirlitningar þegar ég sé fólk sem hirðir ekki um sjálfan sig eða aðra.
Ég persónulega metnast af því að sjá velgengni og þegar fólk skarar fram úr, það veitir manni fyrst og fremst hvatningu.
13. júní 2006 klukkan 01:15

Skrifa athugasemd